Bónus á Laugavegi er hætt að selja vinsæla, sérmerkta Bónus salernispappírinn, 18 rúllur í pakka, ódýrari en allt annað og hefur fylgt íslenskum heimilum um áratugaskeið.
Samtal í Bónus:
– Hvar er salernispappírinn, þessi sérmerkti með 18 rúllum?
– Hann er ekki til lengur hér hér. Flestir viðskiptavina okkar eru túristar og þeir vilja ekki svona margar rúllur í einu. En það eru til smærri pakkningar.
– Hvar eru þær, ég sá þær hvergi?
– Í grænmetisdeildinni.
– Nú!!!