HomeGreinarTALANDI DÚKKA KOMIN Í ÁRBÆJARSAFN EFTIR 50 ÁR

TALANDI DÚKKA KOMIN Í ÁRBÆJARSAFN EFTIR 50 ÁR

Sex ára gömul stúlka átti frænda sem sigldi um öll heimsins höf sem sjómaður. Einu sinni sem oftar var frændi staddur í hafnarborg í Þýskalandi og keypti þá dúkku handa litlu frænku sinni, dúkku sem gat talað, svona rafræn dúkka. Þetta var 1971.

Nú, 50 árum síðar, er dúkkan komin í Árbæjarsafnið og er þar til sýnis í kassanum sem hún var í þegar frændi kom færandi heim eftir útivistina – eins og ósnert.

Litla stúlkan er nú að verða sextug og allan tímann hefur hún geymt dúkkuna eins og sjáldur augna sinna. Börnin hennar fengu ekki að leika sér með hana og því síður barnabörnin. Hún þóttist vita að þá myndi dúkkan fljótt eyðileggjast. Sjálf hafði hún alltaf gengið frá henni í kassann sem hún kom í og falið vel.

Fyrir skemmst datt henni í hug að færa Árbæjarsafni dúkkuna til varðveislu, enda menningarverðmæti þar sem hún lá eins og ósnert í kassanum. Árbæjarsafnið þáði gjöfina og nú er dúkkan komin þangað og sómir sér vel innan um aðra gripi – í kassanum.

Árbæjarsafn er opið  alla daga frá 13-17.

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

VIÐVERA OG VIÐHALD Í KEFLAVÍK

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Ísbjörg ritari segir í viðtali að hún sé mjög opin fyrir aukinni viðveru erlendra hermanna á Íslandi. En þeir þurfi líka að...

SKOPMYND Í JÓLAPAKKANN.

Skorað hefur verið á Halldór Baldursson skopmyndateiknara að gera veggspjald af mynd dagsins í Vísi í dag og innramma til jólagjafa. Ef marka skal...

FYRSTI BÍTLABÍLLIN ´62

Bítlarnir Lennon, McCartney og George Harrison stilla sér hér upp við fyrsta bíl George sem var blár Ford Anglia með númeraplötunni 935 MPF. Myndin...

ALVÖRU GÖTUSTELPA OG ÓLAFUR RAGNAR Á HVERFISGÖTU

Fyrrum foreti Íslands hefur líkt núverandi utanríksráðherra við götustelpu í tali. Jóna Fanney Friðriksdóttir reis með réttu undir nafninu götustelpa á Hverfisgötu fyrir skemmstu: - Í...

ARNALDUR BÝÐUR Í BÍÓ

Forlagið fagnar stórum áfanga í útgáfusögu Arnaldar Indriðasonar sem verið hefur á toppnum í 30 ár heima og erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar...

BÖLVUN GRÆNA LITARINS

"Ég hvet alla vini mína - liðsfélaga og mótherja - sem hafa orðið vitni af hjátrúnni/bölvuninni sem er í ætt minni varðandi græna litinn...

VIÐSKIPTARÁÐ ER EKKI Í VINSÆLDALEIT

Vinsæll viðskiptavinur sendir póst: - Viðskiptaráð er líklega einu hagsmunasamtökin hér á landi sem óttast ekkert að stíga óþyrmilega á tær annarra í þjóðfélaginu en eigin...

HVER ER KONAN?

Í hugum flestra leit hún ekki svona út - var mun glæsilegri. Örlög hennar voru ömurleg og þessi mynd er teiknuð af AI samkvæmt...

SLEPPIÐ PARÍS OG RÓM – SNÆFELLSNES ER STAÐURINN

Ferðavefurinn Travel+Leisure hvetur ferðamenn til að sleppa París og Róm að sinni og birtir lista yfir níu borgir í Evrópu sem eru ákjósanlegri um...

ADHD Á EGILSSTÖÐUM

Menntaskólinn á Egilsstöðum hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna í ár fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu nemenda með ADHD. Formaður ADHD samtakanna, Vilhjálmur Hjálmarsson og...

SAGT UPP Á HAGSTOFUNNI – ÍSLANDSMEISTARI Í ANDSTÖÐU VIÐ ESB

Að gefnu tilefni er þesssi frétt frá 4. júní endurbirt hér nú þegar Hirti hefur verið sagt upp starfi sínu á Hagstofunni án viðhlítandi...

TÓMAS OG RAGNHEIÐUR

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar í ár fyrir ljóðabókina Deig. Dómnefndin segir: "Deig er ljóðabók sem fjallar um hráefni lífsins, fegurðina í...

Sagt er...

Inga Bjarnason leikstjóri troðfyllti Tjarnabíó síðdegis í gær í útgáfuhófi í tilefni af eigin ævisögu - Einfætta ballerínan. Hvert sæti skipað og jafnmargir stóðu...

Lag dagsins

Kanadíska söngkonan Joni Mitchell er afmælisbarn dagsins (83). Engin söngkona eða lagasmiður hefur komist með tærnar þar sem hún hefur haft hælana á ferli...