HomeGreinarBIÐLAUNIN AFKOMUTRYGGING RAGNARS ÞÓRS

BIÐLAUNIN AFKOMUTRYGGING RAGNARS ÞÓRS

„Vegna frétta af biðlaunum frá formannstíð minni i VR vil ég koma eftirfarandi á framfæri,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson alþingismaður og fyrrum formaður Verslunarmannafélagsins:
–
„Þegar ég tók við embætti sem formaður VR í mars 2017 tók ég ákvörðun um að lækka laun mín um 300.000 á mánuði en ein af forsendum þess var að halda öðrum réttindum eins og biðlaunum sem eru alla jafna 6 mánuðir hjá forystufólki innan verkalýðshreyfingarinnar.
–
Í mars 2019 tók ég við formennsku í Landssambandi íslenskra verslunarmanna og fór ég fram á að launin yrðu helminguð. Þing LÍV samþykkti hinsvegar að lækka þau um aðeins 25% sem eru 100.000 á mánuði. Samtals lækkaði ég laun mín um 400þúsund á mánuði.
Á þeim rétt 8 árum sem ég gegndi formennsku í VR, og 6 árum í LÍV, tók ég aldrei meiri hækkun launa en kjarasamningar kváðu um. Reyndar afsalaði ég mér launahækkunum í kringum lífskjarasamninginn 2019.
–
Ég tók þetta saman að samtals lækkaði ég laun mín á þessu tímabili um 40,6 milljónir, sem VR/LÍV greiddi mér í lægri launum en annars hefði.
–
Ástæða þess að við hjónin ákváðum að halda biðlaunum er fyrst og fremst sú að ég hef litið á biðlaunin sem mjög tímabundna, afkomutryggingu, þar sem forystufólk í verkalýðshreyfingunni hefur jafnan átt erfitt uppdráttar á vinnumarkaði eftir starfslok.
Þar sem starfið felst í grunninn um aðhald gegn samtökum atvinnulífsins og fleiri samtökum sérhagsmuna. Þeir formenn sem hafa gengið harðar fram en almennt þekkist eru því í veikari stöðu með framtíðar atvinnu en aðrir og eru fjölmörg dæmi um það.
–
Sem fimm barna faðir og líklega sá forystusauður innan verkalýðshreyfingarinnar sem gengið hefur hvað harðast fram gegn þeim sem allt eiga, og öllu ráða, í íslensku samfélagi tel ég mig vera berskjaldaðri en margir aðrir í minni stöðu.
–
Við tókum því þessa ákvörðum um að leggja biðlaunin inn á neyðarsjóð fjölskyldunnar og nýta hann þegar þess verður þörf.
–
Ég bý ekki við þann lúxus að geta farið í leyfi, eins og opinberir starfsmenn, og gengið að starfi eftir að þingsetu líkur eða þeim réttindum sem því fylgja, eins og biðlaunum.
Hvað upphæðir varðar þá snúast þær um sex mánaða laun hjá VR eða um 8 milljónir fyrir skatt. Ég gengdi trúnaðarstörfum fyrir VR í 16 ár. Þetta er hluti af þeim starfskjörum sem ég samdi um í upphafi formannstíðar minnar, með hliðsjón af því að lækka launin umtalsvert á móti.
–
Ég hef fullan skilning á því að þetta slái fólk illa en vildi koma sjónarmiðum mínum á framfæri og forsögu málsins.“
TENGDAR FRÉTTIR

STOFNANDI STÖÐVAR 2 SPYR – HVAÐA PLEBBAR RÁÐA RÍKJUM Á SÝN?

Hans Kristján Árnason, sem stofnaði Stöð 2 með Joni Óttari Ragnarssyni, fylgdist með hátíðardagskrá Sýnar í tilefni af 40 ára afmæli Stöðvar 2 í...

„ANNARS LÍÐUR MÉR ÁGÆTLEGA“ – GAT HVORKI GENGIÐ, SETIÐ EÐA ANDAÐ

Í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Benedikts Gröndal Sveinbjörnssonar, rifjar Ragnar Önundarson samfélagsrýnir og fyrrum bankastjóri upp þessa sögu: "Langamma mín, Jensína Björg Matthíasdóttir, heimsótti...

FRIÐARSÚLAN Í VIÐEY TENDRUÐ

Kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn, föstudaginn 9. október klukkan 20.00. Frítt er í Viðeyjarferjuna Í boði Yoko Ono...

FEÐGAR HOFÐU Á HARRY POTTER Í SJÓNVARPINU – SONURINN VISSI EKKI AÐ PABBI HANS HEFÐI LEIKIÐ HARRY POTTER

Daniel Ratcliffe, sem lék Harry Potter í í samnefndum kvikmyndum, horfir á Harry Potter með syni sínum sem hefur ekki hugmynd um að hann...

BERGÞÓRA GLÍMIR VIÐ SEÐLA-GEIRA

Hagbarður í Hokri sendir póst: - Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur Íslandsbanka er ekki við sama heygarðshornið og stórbóndinn Seðla-Geiri í Svörtuloftum (sjá hér.) Bergþóra er samt greinilega...

JURTAKOKTEILAR Í GRASAGARÐINUM

Slow Food á Íslandi býður ykkur í BragðaGarð, skemmtilega og fræðandi Slow Food hátíð sem haldin verður í Grasagarði Reykjavíkur föstudaginn 9. október kl....

ÚKRAÍNSKAR HELGIMYNDIR TIL ÍSLANDS – Í SKJÓLI HÉR ÞAR TIL STRÍÐINU LÝKUR

Listasafn Íslands opnar 17. október sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás, þar sem sýndar verða 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns...

RÁÐHERRANN RÆKTAR EPLI – AÐSTOÐARKONAN GÚRKUR

Logi Einarsson menningarmálaráðherra ræktaði epli í sumar og uppskeran komin í hús - þrjú epli. Ráðherrann hefur ákveðið að börnin hans tvö fái sitthvort...

FRIÐARVIKA Í REYKJAVÍK

Á þessu ári eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi í Reykjavík árið 1986, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl Gorbachev,...

SKORA Á SÆLAND AÐ VÍGGIRÐA HLJÓMSKÁLAGARÐ

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Það þarf girða fyrir að börn og táningar séu að ráfa inn í Hljómskálagarð. Skora á  Sæland að setja rammgerða víggirðingu og...

VOPNABRÆÐUR AKA Á KJÖRSTAÐ

Gamla skopmyndin sýnir Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjalfstæðisflokksins, og vopnabróður hans, Hannes Hólmstein, akandi á kjörstað í Stúdentaráðskosningum í Háskólanum þegar þeir stunduðu þar...

ÞJÓFÓTTUR KÖTTUR Í VESTURBÆNUM

"Ég vil afsaka það innilega ef að hann Dreki minn hefur stolið af þér sokk sem að hann finnur í þvottahúsum í hverfinu og...

Sagt er...

Að vera eða ekki vera er vandasamt úr að skera en augljóst í sjón hvort ákveðinn Jón er séra eða ekki séra - Karl Ágúst Úlfsson

Lag dagsins

Einn mesti tenór allra tíma, Luciano Pavarotti (1935-2007), hefði orðið 91 árs á morgun. Fæddur í Modena á Ítalíu og seldi 100 milljón hljómplatna...