HomeGreinarTRUMP LEYSIR KVENNAMÁL SONAR SÍNS

TRUMP LEYSIR KVENNAMÁL SONAR SÍNS

Donald J. Trump hefur leyst kvennamál elsta sonar síns, Donalds yngri, með því að skipa kærustu hans, Kimberley Guilfoyle, sendiherra Bandaríkjanna í Grikklandi.

Donald yngri skildi við eiginkonu sína, Vanessu, árið 2018 en þau eiga fimm börn. Samband hans og Kimberley hefur staðið síðan þá. Þau hafa ekki sést saman um skeið.

Donald yngri hefur sést opinberlega með annarri konu undanfarna mánuði og ekki leynt því að um rómantískt samband er að ræða. Hann fagnaði skipun Kimberley á samfélagsmiðlum en minntist ekkert á samband þeirra. Það gerði ekki heldur forsetinn verðandi en hann talaði um Kimberley sem fjölskylduvin.

Skipun þessi er sögð bera keim af þeirri spillingu sem Trump sjálfur lofaði kjósendum að uppræta. Kimberley hefur verið öflug í stuðningi við Trump og haldið ræður á framboðsfundum. Hún var áður gift Gavin Newscom ríkisstjóra Kaliforníu sem er Demókrati og er menntuð sem lögfræðingur auk þess sem hún var þáttastjórnandi á Fox sjónvarpsstöðinni.

TENGDAR FRÉTTIR

SPÁKONAN Á BJÓRDÆLUNNI – 9 MARKA LEIKUR

Finnar voru að leggja San Marino kyrfilega á Þjóðarleikunum í knattspyrnu síðdegis. Í hálfleik var staðan 5-0 fyrir Finna og úkraínska þjónustúlkan á hverfiskránni...

TSUNDOKU – BÓKMENNTAGRÆÐGI?

"Var að kynnast nýju orði yfir ástand sem ég vissi ekki að hafi verið orðað, en orðið yfir þetta ástand kemur úr japönsku. Tsundoku,"...

„BESTI UTANRÍKISRÁÐHERRA SEM VIÐ ÁTTUM ALDREI“

Björn Bjarnason stjórnmálamaður og fyrrum ráðherra varð 82 ár í gær. Hannes Hólmsteinn Gissurarson heilsaði upp á afmælisbarnið og sagði: "Björn er bestí utanríkisráðherra sem...

EINKAVÆÐING INNVIÐA – ENGINN BÓNDI MYNDI SELJA MJÓLKURKÝRNAR OG LOFA UM LEIÐ AÐ HALDA ÁFRAM AÐ FÓÐRA ÞÆR Á EIGIN KOSTNAÐ

Ragnar Önundarson bankastjóri á eftirlaunum og samfélagsrýnir velti fyrir sér einkavæðingu innviða yfir hádegismatnum: "Einkavæðing innviða (þjónustu sem viðskiptavinir geta ekki verið án og verða...

STEFÁN JÓN ÞARF EKKI GERVIGREIND

Samfélagsmiðlar eru að fyllast af gervigreindarmyndum af nafntoguðu fólki sem lætur AI setja sig i myndræna tímavél sögunnar og notar svo sem prófílmynd. Ekki fjölmiðlamaðurinn...

Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST…

Skyndibitavígin falla eitt af öðru.

ÓVEÐUR Á TENE

Það viðraði ekki til myndatöku á Tenerife í morgun þegar stjörnuljósmyndarinn Sigurgeir Sigurjónsson fór í morgungöngu sína á ströndinni í Médano. Helga kona hans...

KÁLHAUS

Nú tíðkast að fólk merki höfuðföt sín með merkingum eða slagorðum til að einkenna sig frá öðrum. Nú hafa grænmetisætur fengið sína húfu sem...

FUNDU EKKI Á SÉR AF CAPTAIN MORGAN

Hjónin Elín Sigurðardóttir og Björn Sigmundsson dvelja á Spáni í góðu yfirlæti. Um daginn splæstu þau í flösku af Captain Morgan á mjög góðu...

TANNLÆKNAR PANTA FRÁ ÚTLÖNDUM – STYTTRA EN Í GARÐABÆ

Íslenskir tannlæknar eru í auknum mæli farnir að panta efni til tannviðgerða frá útlöndum. Til þessa hafa þeir pantað frá aðalbirgi sem staðsettur er...

EGILL (67)

Fjölmiðlastjarnan Egill Helgason fagnar merkum áfanga í dag, orðinn 67. Síungur og frískur þó eldri borgari sé orðinn og hefur ekki ástæðu til að...

TVEIR TURNAR

Hótelturninn á Skúlagötu "kallast á við" Hallgrímskrikju í upphafsstefni sjónvarpsfrétta ríkisins á hverju kvöldi. Það tók 41 ár að byggja Hallgrímskirkju en hótelturninn átti...

Sagt er...

Ef Lori Huang, eiginkona "kvensama forstjórans" Jensen Huang, ákveður að skilja við hann gæti hún orðið ein ríkasta kona í heimi. Samkvæmt lögum í...

Lag dagsins

Hún var samferðakona Bítlanna og fleiri breskra hljómsveita sem sprungu út á sjöunda áratugnum og lögðu ekki aðeins Breska heimsveldið að fótum sér heldur...