Íbúum að aðstandendum þeirra á Hrafnistu hefur borist póstur frá Freyju Ósk Þórisdóttur aðstoðarhjúkrunardeildarstjóra:
–
Kæru íbúar og aðstandendur
„Tekin hefur verið ákvörðun að útvista ræstingu á Hrafnistu í Laugarási og á Hrafnistu Hraunvangi til Sólar ræstingarþjónustu. Þetta er svipuð vegferð og hefur verið farin á öðrum heimilum Hrafnistu með góðum árangri.
Ræstingardeildir þessara heimila verða lagðar niður en starfsfólki deildanna verða boðin önnur störf innan heimilanna.
Sólar ehf. mun taka við ræstingunni þann 27. nóvember n.k.
Það mun taka smá tíma að fínstilla verkferla með nýjum aðilum, við biðjum ykkur að sýna því skilning.
Ef eitthvað er óljóst er velkomið að heyra í deildarstjóra.“