Dægurstjarnan á himni þokkadísa heimsins á síðustu öld, Bo Derek, er 68 ára í dag. Sló í gegn í rómantísku gamanmyndinni „10“ þar sem hún kitlaði innri taugar karlmanna í milljónavís og á eftir fylgdu kvikmyndirnar „Tarzan the Ape Man“, „Bolero“ og „Ghosts Can’t Do It“. Síðustu ár hefur Bo einbeitt sér að náttúruvernd, hagsmunum uppgjafahermanna og dýravernd.