HomeGreinarÍSLENDINGAR Í BRETLANDI MISSA PERSÓNUAFSLÁTTINN UM ÁRAMÓT

ÍSLENDINGAR Í BRETLANDI MISSA PERSÓNUAFSLÁTTINN UM ÁRAMÓT

Kuldahrollur er í Íslendingum sem búsettir eru í Bretlandi vegna laga sem taka gildi um áramót og svipta þá íslenskum persónuafslætti. Lögin áttu að taka gildi í fyrra en var þá frestað um ár og nú er sá tími brátt útrunninn.

650 Íslendingar í Bretlandi hafa skrifað undir mótmælaskjal vegna þessa enda telja þeir sig missa verulegan spón úr aski sínu við þetta. Annað lagafrumvarp sem slær þetta út af borðinu er klárt á Alþingi en fær tæpast afgreiðslu fyrir áramót og þá um seinan.

Einn þessara Íslendinga er Vilhjálmur Ragnarsson sem búsettur hefur verið á Norður Írlandi í 20 ár og starfað þar við kvikmyndagerð og aðrar skapandi greinar:

„Ef þetta frumvarp verður ekki samþykkt munu lífeyrisþegar búsettir erlendis missa persónuafsláttinn og lækka í útborgunum um allt að 30% á milli mánaða. Fyrir er þessi hópur skertur töluvert með búsetuskerðingum og fær engar félagslegar bætur sem eru stór partur af lífeyrisbótum,“ segir Vilhjálmur sem unir hag sínum vel á Norður Írlandi, hættur að vinna en væri alveg til í aða flytja heim ef hann hefi efni á því eins og hann orðar það sjálfur:

„Það er ágætt hérna, ódýrt að lifa og góður vinahópur. Hitti börn og barnabörn reglulega í sameiginlegum fríum á heitari stöðum og í stuttum skreppum til Íslands. Held mér andlega í þokkalegu jafnvægi með að skrifa eitthvað sem finnst í dánarbúinu og verður heimsfrægt. Ég ferðast mikið um Evrópu í 15 ára gömlum SAAB blæjubíl með sambýliskonu minni og tíkinni Þóru.“

TENGDAR FRÉTTIR

RÁÐHERRANN RÆKTAR EPLI – AÐSTOÐARKONAN GÚRKUR

Logi Einarsson menningarmálaráðherra ræktaði epli í sumar og uppskeran komin í hús - þrjú epli. Ráðherrann hefur ákveðið að börnin hans tvö fái sitthvort...

FRIÐARVIKA Í REYKJAVÍK

Á þessu ári eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi í Reykjavík árið 1986, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl Gorbachev,...

SKORA Á SÆLAND AÐ VÍGGIRÐA HLJÓMSKÁLAGARÐ

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Það þarf girða fyrir að börn og táningar séu að ráfa inn í Hljómskálagarð. Skora á  Sæland að setja rammgerða víggirðingu og...

VOPNABRÆÐUR AKA Á KJÖRSTAÐ

Gamla skopmyndin sýnir Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjalfstæðisflokksins, og vopnabróður hans, Hannes Hólmstein, akandi á kjörstað í Stúdentaráðskosningum í Háskólanum þegar þeir stunduðu þar...

ÞJÓFÓTTUR KÖTTUR Í VESTURBÆNUM

"Ég vil afsaka það innilega ef að hann Dreki minn hefur stolið af þér sokk sem að hann finnur í þvottahúsum í hverfinu og...

KYNJARUGL Á MEISTARAVÖLLUM

Það var glæsileg umgjörðin á Meistaravöllum þegar KR-stelpurnar tóku á móti HK-stelpunum í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil B liða. Leikurinn fór 2-2 og tapaðist annars vegar...

DORRIT ELSKAR ICELANDAIR

Þjóðargersemin Dorrir Moussaieff flaug með Icelandair og var ánægð með. Fékk að heilsa upp á flugmennina í flugstjórnarklefanum og þakkaði fyrir sig með þessu: "Thank...

SKÚLI MOGENSEN Á LISTAVERK EFTIR HELGA HÓSEASSON

"Skilti/listaverk eftir Helga Hóseasson (1919-2009) frá 12. september 1995 en gæti allt eins verið dagsett í dag," segir athafnaskáldið Skúli Mogensen og heldur áfram: - "Sorglegt...

KÍNVERSK SAMFÉLAGMIÐLASTJARNA VIÐ TJÖRNINA

Ökumaður sem átti leið framhjá Reykjavíkutjörn í gær snarhemlaði, skrúfaði niður rúðuna og smellti af mynd af kvenmanni á Tjarnabakkanum: "Þetta er kínversk samfélagsmiðlastjarna með...

DÝR SKYLDI HAFLIÐI ALLUR…

Gott dæmi í Pisa könnun: - Hvað stal þjófurinn miklu að meðaltali? Svar: 1.457 kr (og 19 aurum) í 42 bíræfnum ránsferðum! -

FYRSTA PORTRETTIÐ AF FRIÐRIKI TÍUNDA VELDUR USLA Í DANMÖRU

Á föstudagskvöldið var fyrsta portrettið af Friðriki tíunda Danakonungi afhjúpað í Fredriks Slot í Hilleröd 38 kílómetra norðvestur af Kaupmannahöfn. Verkið er unnið af...

ÓLAFUR LAGAR VEGI MEÐ KÍLÓMETRAGJALDI

Vestfirðingurinn Ólafur Sæmundsson er farinn að nota kílómetragjaldið til að laga vegina á landsbyggðinni. Byrjaði fyrir vestan í gær.

Sagt er...

Baldur Már Arngrímsson tónlistarmaður og fyrrum gítarleikari Mannakorn á fréttaskýringu dagsins: "En öldruð flugfreyja sparkaði í lækni. Það væri frétt."

Lag dagsins

Hugleikur Dagsson, beittasti blýanturinn í íslensku skopskúffunni, er afmælisbarn dagsins (49). Hann fær óskalagið Mind Games (Hugleikar): https://www.youtube.com/watch?v=bVYXWVs0Prc