Ivan Jovanović stakk í stúf og vakti athygli þar sem hann sat á hækjum sér á hliðarlínunni í leik Grikkja og Englendinga í Þjóðadeidinni í knattspyrnu í gærkvöldi þar sem Grikkland lagði England 2-1.
Ivan var ráðinn landsliðsþjálfari Grikkja í ágúst og hefur unnið alla leiki sína síðan, þrjá að tölu, og nú stimplað sig inn sem fyrsti gríski þjálfarinn sem vinnur Englendinga í landsleik – og það á Wembley.
Ivan er Serbi, 62 ára, og þjálfaði ýmis lið í Grikklandi áður en hann tók við landsliðinu fyrir skemmstu.