HomeGreinarMEÐ BARBIE Í SUND - ÖRUGGAST

MEÐ BARBIE Í SUND – ÖRUGGAST

„Þegar ég fór að stunda aftur sundlaugar af krafti eftir heimsfaraldur þurfti ég auðvitað að taka með mér handklæði til þerru,“ segir Sveinn Markússon járnlistamaður í Hafnarfirði. Hljómar einfalt en er það ekki:
„Hvít og grá þerriklæði eru talrík á heimilinu. Ég asnaðist til að taka almúgagrátt handklæði með, sem ég tróð í lúinn lamínat handklæðarekka Suðubæjarlaugar og fékk mér sprett.
Eftir sprett, pott og sturtu án sápu, ég þvæ mig hátt og lágt fyrir sund, hóf ég þá kúnst að þurrka mig uppi og niðri með mínu gráa, sagði maður við mig, höstulega, „Þetta er mitt handklæði!“
Ég ætlaði að malda í móinn, en horfði á handklæðarekkann og sá að þar voru nokkur grá handklæði. Þar sem ég stóð á Adamsklæðunum rétti ég honum það sem ég var með í höndum og hitt klæðið sem eins gat verið mitt eða hans og sagði honum að hann gæti átt þau bæði. Að ég kunni að lofþurrka eins og skarfur!
Síðan þá fer ég með retró litrík gleðihandklæði í sund. Ég er gamli skarfurinn með hafmeyju, Barbie, Búnaðarbanka handklæðin. Verum litrík!
TENGDAR FRÉTTIR

SVESKJUR UPPSELDAR Í REYKJAVÍK

Eldri borgara í matarinnkaupum í Reykjavík vantaði sveskjur í grautinn. Þær voru ekki til í fimm matvöruverslunum sem hann leitaði til. Hann spurðist fyrir...

LEIÐRÉTTING: SANTE FALSAÐI BJÓRAUGLÝSINGU Í NAFNI VIÐREISNAR

Fyrir nokkrum dögum birtist hér frétt af bjórauglýsingu sem merkt var Viðreisn. Nú hefur komið í ljós að auglýsingin var frá vinsölunum í Sante...

BARA 60 Í SUNDHÖLLINNI Í EINU

Sundhollin við Barónsstíg var lokað af og til í gær vegna álags en aðeins 60 hleypt inn í einu. Olli þetta furðu margra gesta. -

KATTÞRIFINN KÖTTUR Í SUNDI

Þessi rauðbrúni köttur er orðinn eins og fastagestur í Vesturbæjarlauginni, mætir á hverjum degi um þrjúleytið og horfir löngunaraugum á innganginn. En lætur þar...

FRESTAÐI SJÖTUGSAFMÆLINU UM ÞRJÁ MÁNUÐI EFTIR INNTÖKU Á NAD+

Lífsþyrstur íbúi í 101 Reykjavík, hugmyndaríkur og snjall, frestaði sjötugsafmæli sínu, sem átti að vera eftir nokkta daga, um þrjá mánuði, Ástæðan er inntaka...

DORRIT SLEIKIR SÓLINA Í SKUGGA SKILNAÐAR

Dorrit Moussaieff nýtur lífsins á grísku eyjunni Mykonos með vinum sínum í skugga skilnaðar við Ólaf Ragnar sem á meðan berst gegn yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu...

LAUGABÚÐ Á EYRARBAKKA TIL SÖLU

Það fer nú að líða að því að hið sögufræga hús Sjónarhóll – Eyrargata 46 – á Eyrarbakka, Laugabúð, verði auglýst til sölu. Ekki...

NO PARKING

Þetta merki þýðir "Bannað að leggja" á öllum tungumálum, jafnvel esperanto. Ökumaður þessa ferðabíls kaus þó að leggja honum í lítilli þvergötu í miðbæ...

RÁÐHERRAHJÓN Á ÍSLENDINGASLÓÐUM Í KANADA

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hefur undanfarna daga verið í opinberri heimsókn á Íslendingaslóðum í Kanada ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttir, sem...

INGA SÆLAND ELDRI BORGARI – 67 ÁRA Í DAG

Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra er 67 ára í dag og því orðin eldri borgari með öllu sem því fylgir. Inga er fædd árið 1959 á...

SMURSTÖÐVAR LEGGJA UPP LAUPANA VEGNA RAFBÍLA

Minnst þrjár smurstöðvar hafa lagt upp laupana í Reykjavík á síðustu mánuðum. Sú fjórða lokar eftir sumarfrí starfsmanna sem hófst um helgina en það...

PENINGAR TIL SÖLU Í KÓPAVOGI

Hægt er að kaupa gamla, íslenska seðla í Antikbúðinni í Auðbrekku 4 í Kópavogi. Það er hins vegar ekki hægt að kaupa neitt fyrir...

Sagt er...

"Þegar maður á gamlan bílskrjóð veltir maður því stundum fyrir sér hvað maður tímir að eyða miklu í hann. Hvað er maður reiðbúinn til...

Lag dagsins

Sólmyrkvinn að bresta á en alnyrkvi getur líka lagst yfir hjartað eins sog Bonnie Tyler syngur hér um. https://www.youtube.com/watch?v=lcOxhH8N3Bo&t=3s