Mama Cass, stóra konan í söngsveitinni Mamas & the Papas, hefði orðið 83 ára í dag en hún lést langt fyrir aldur fram aðeins 33 ára að aldri. Hún hlaut Grammy verðlaunin fyrir framlag sitt í laginu Monday, Monday 1967 – lag sem enn ómar um heimsbyggðina.