Nú rétt fyrir kl. 16.00 á fimmtudegi var hvítabjörn, sem gekk hafði á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum aflífaður. Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá þessu:
„Tveir lögreglumenn frá Ísafirði, sem fluttir voru með björgunarbátnum Kobba Láka úr Bolungarvík og séraðgerðasvið LHG, sem flutt var með þyrlu LHG önnuðust verkefnið.
Dýrið fannst í fjörunni skammt frá sumarhúsinu Höfða á Höfðaströnd, hvar ein manneskja hélt til. En hún hafði séð dýrið fyrir utan húsið fyrr í dag,“ segir lögreglan í tilkynningu.