Reykjavíkurborg tilkynnir
–
Fjölmargir gripir úr sögu reiðhjóla á Íslandi verða til sýnis í Tjarnasal Ráðhússins frá kl. 16:00 mánudaginn 16. september fram á sunnudag 22. september. Þetta er viðburður í tilefni af Evrópskri samgönguviku 2024.
Sýningin verður opin á opnunartíma Ráðhússins frá kl. 16:00 mánudaginn 16. september til lokadags 22. september. Á sýningunni er breitt úrval af öðruvísi og áhugaverðum reiðhjólum frá ýmsum tímum. Hvert hjól er merkt með upplýsingum.
Aðgangur er ókeypis og gestir eru hvattir til að koma hjólandi, gangandi eða í strætó til að skoða sýninguna.