HomeGreinarELLÝ Q4U Í ÆVINTÝRAFERÐ Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

ELLÝ Q4U Í ÆVINTÝRAFERÐ Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

„Frá því ég man eftir mér hef ég notið þess að skapa og skiptir engu máli í hvaða formi það er,“ segir Ellý Q, Elínborg Halldórsdóttir, sem opnar þrettándu einasýningu sína í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg á laugardaginn. Sýningin ber nafnið Glitz og þar verða að mestu sýnd olíumálverk sem Ellý hefur unnið undanfarin ár:

„Ég fór inn í tónlistarsenuna um tvítugt, söng og kom fram með nokkrum hljómsveitum. Þekktust þeirra er Q4U sem starfaði með hléum í 35 ár og gaf út tónlist bæði hérlendis og erlendis. Árið 2001 lauk ég námi frá LHÍ og flutti með börnin mín til Akraness. Þar starfaði ég sem forstöðumaður tómstunda- og menningarhúss, ásamt því að sjá um kennslu í myndlist, tónlist og dansi. Árið 2006 tók ég að mér að vera dómari í X-Factor á Stöð 2 en vann eftir það við myndlist og tónlist. Í nokkur ár frá 2017 bjó ég erlendis og hætti þá í Q4U. Nú starfa ég sem verkefnastjóri myndlistar í Vinasetrinu, ásamt því að mála. Myndum mínum er rétt lýst sem rómantískum og litríkum sem er auðvitað algjörlega á skjön við það sem ætla mætti af pönkaranum úr Q4U. Mögulega er það vegna þess að ég er í eðli mínu afar lífsglöð og finnst nóg um þessi niðurdrepandi neikvæðni sem tröllríður öllu. Ævintýri hafa alltaf höfðað til mín og einnig það dularfulla sem við getum ekki fest hönd á,“ segir Ellý Q.

Opið verður virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16. Sýningarlok 30. september.

TENGDAR FRÉTTIR

BLÓMSTRANDI FISKIBYGGÐIR ÁN FREKJUHUNDA

"Um miðja síðustu öld var þorskaflinn í hámarki, sem kvótakerfið hefur ekki náð að endurheimta," segir Ragnr Önundarson samfélagsrýnir og fyrrum bankastjóri og heldur...

BRJÁLUÐ BIÐRÖÐ Í COSTCO

Vonsvikinn viðskiptavinur sendir skeyti: - Biðraðirnar tvær í Costco náðu inn að hinum enda hússins síðastliðinn laugardag. Fullir innkaupavagnar siluðust áfram á hraða snigilsins. - Vissulega má búast...

FANN HAMINGJUNA Í TÚNFISKSKERI

"Skilgreina tæra hamingju?" spyr blaðamaðurinn og heimspekingurinn Þórarinn Þórarinsson þriðji og svarar um leið: "Held maður komist varla nær henni en þegar maður buslar með...

ÚLFAR OG ÓÐURINN TIL DAUÐANS

"Fimmtudaginn 23. júlí kl. 17.00 fögnum við útgáfu bókarinnar Flærðarsól - Óður til dauðans eftir Úlfar Þormóðsson," segir Pétur Már Ólafssson útgefandi í Veröld...

MÓTÓRHJÓL BRANN VIÐ DALVÍK

Tikynning frá Tían bifhjólaklúbbi Norðuramts: - Bifhjól brann til kaldra kola á Hámundarstaðahálsi skammt frá Dalvík í gær. Engann sakaði en eigandinn, Ómar Geirsson, varð var við...

KETTIRNIR Í REYKJAVÍK

Kettirnir í Reykjavík kunna að velja sér veitingastaði. Hér eru tveir að bíða eftir afgreiðslu á Frakkastíg.

ENSKAN AÐ BREYTAST Í MÖRG TUNGUMÁL

"Enskan er, smám saman, að breytast í mörg tungumál," segir Þorsteinn Eggertsson dægurskáld og nýbakaður Fálkaorðuhafi. Hann nefnir dæmi: "Framburður á bresku og amerísku er...

VAFASAMAR HITAMÆLINGAR

"Vegna frétta um hlýindi og hita á undaförnum dögum er rétt að vara við þremur mælum á vegum Veðurstofunnar norðaustan- og austanlands. Þeir mæla...

„ÞAÐ ER BARA AF ÞVÍ AÐ ÞÚ HEFUR EKKI NÓG AMFETAMÍN“

Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur minnist vinar síns, Megasar, á kjarnyrtan hátt eins og henni er lagið: "Magnús Þór allur. Margs að minnast, alveg frá því um...

FJÁRMÁLARÁÐHERRA FER ÚR JAKKAFÖTUNUM

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er alltaf í jakkafötum. Þjóðin þekkir hann ekki öðruvísi. En nú er hann kominn í sumarfrí og hefur alveg skipt...

ÍSLENSKA VIÐSKIPTAMÓDELIÐ

"Íslenska viðskiptamódelið; kaupa upp öll fyrirtæki í sama rekstri til að tryggja fákeppni, hækka verð og reka fólk," segja þeir á kaffihúsunum á Skólavörðustíg. Sjá...

HUGO BOSS

Fæðingardagur þýska klæðskerans og tískukóngsins Hugo Boss (1885-1948). Hann vann náið og mikið með þýska Nasistaflokknum í síðari heimsstyrjöldinni, hannaði einkennisbúninga hermanna og stormsveita...

Sagt er...

"Fyrsti fiskur sumarsins," segir kvikmyndaleikstjórinn Friðrik Þór alsæll í ánni: "Engin dýr meiddust við tökur þessar. 69 cm fermingarstúlka."

Lag dagsins

Steinar Berg, hljómplöuútgefandi og nú ferðaþjónustubóndi í Fossatúni í Borgarfirði, er afmælisbarn dagsins (74). Stuðmenn, Bubbi, Mezzoforte og hvað þær hétu stórstjörnur þjóðarinnar sem...