„Hornið okkar afmæli, 45 ára. Takk elsku börnin okkar að standa vaktina með okkur öll þessi àr og barnarbörn líka,“ segir Valgerður Jóhannsdóttir veitingakona í Hafnarstræti en líklega er það einsdæmi í veitingasögu Reykjavíkur að þrír ættliðir standi svo þétt saman í rekstri í næstum hálfa öld.