Vinningshafi í 2. flokki í Happdrætti DAS árið 1954 var Jóhannes Þorsteinsson og vann hann þessa glæsilegu Chevrolet Bel Air bifreið.
Í frétt í Vísi 4. ágúst 1954 segir að „þetta hafi verið mikill hamingjudagur hjá Jóhannesi“ vegna þess dagurinn var einnig afmælisdagur dóttur hans. Þar að auki er þess getið að Jóhannes vann sem bifreiðastjóri hjá BSR og bíllinn sem hann ók var sagður „vera orðinn mjög úr sér genginn“ því hafi Chevrolet bifreiðin hafi komið sér sérstaklega vel.