Þann 18. janúar næstkomandi kl. 15–17 opnar Christine Gisla, listljósmyndari, sýninguna Friðarþrá (Longing for Peace) í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, 101 Reykjavík.
Á sýningunni deilir Christine hjartans ósk sinni um frið í heiminum og lætur jafnframt hugann reika til bernskuára sinna. Með verkum sínum skapar hún einstaka tengingu á milli æskuminninga og vonar um betri framtíð.
Christine Gisla hefur haldið fjölda einka- og samsýninga víða um heim. Friðarþrá er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2025.