Á dögunum var myndlistarmönnum boðið að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um listaverk í almannarými í Vesturvin á Héðinsreit í Vesturbæ Reykjavíkur.
Nú hefur forvalsnefnd valið þau Finn Arnar Magnússon, Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur og Elínu Hansdóttur til að vinna tillögur að verki.
Valið verður úr tillögum í lok febrúar.