Frá hinu opinbera:
–
Reykjavíkurborg og Kópavogur hafa samþykkt að kynna tillögur að rammahluta aðalskipulags fyrir fyrstu lotu Borgarlínunnar. Fyrsta lotan er á milli Ártúnshöfða í Reykjavík og Hamraborgar í Kópavogi.
Skipulagsgögnin fjalla meðal annars um legu Borgarlínunnar, staðsetningu stöðva og umhverfisáhrif framkvæmda og reksturs Borgarlínunnar. Jafnframt eru sett fram almenn viðmið um hönnun göturýma og forgang virkra ferðamáta og almenningssamgangna.
Vegagerðin hefur jafnframt lagt fram til kynningar umhverfismatsskýrslu vegna framkvæmda við fyrstu lotu Borgarlínu.
Með Borgarlínunni verður til nýtt almenningssamgöngukerfi sem bindur sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu betur saman, með betri lífsgæðum og einfaldara lífi fyrir íbúa. Með henni er verið að styrkja innviði og taka nauðsynleg skref í loftslagsmálum og í átt að betri lýðheilsu.
Kynningarfundir verða haldnir á nýju ári; fimmtudaginn 9. janúar og í Kópavogi 15. janúar.