Einar Þór Jónsson, baráttumaður, mannvinur og gleðigjafi er afmælisbarn dagsins (65). Hann er stærrií sniðum en margur hyggur – enda á hann kyn til:
Einar Þór fæddist í Bolungarvík, barnabarn Einars Guðfinnssonar útgerðarmanns sem var allt í öllu í bænum og Einar litli því hluti af ættarveldinu. Hann varð þó ekki sá erfðaprins sem hann var borinn til heldur þurfti fljótlega að berjast fyrir sjálfum sér og takast á við erfiðan móðurmissi og samkynhneigð í litlu sjávarþorpi.