Myndir sjö reykvískra grunnskólanema hafa verið valdar sem framlög Reykjavíkur í alþjóðlega myndlistarsamkeppni barna. Samtök friðarborgarstjóra, Mayors for Peace, standa árlega fyrir keppninni í aðildarborgum sínum og börnum í Reykjavík gafst nú í annað sinn tækifæri til þátttöku. Þema keppninnar er „Hvað er friður fyrir mér?“
Viðtökur kennara og barna við keppninni voru frábærar og voru verkin afar fjölbreytt og falleg. Því var ljóst að dómnefndarinnar beið erfitt verkefni, en hana skipuðu Agnes Ársælsdóttir, myndlistarmaður, sýningastjóri og formaður dómnefndar, Auður Birna Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Höfða friðarsetri Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, og Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.