Franska leikkonan og kyntáknið Brigitte Bardot verður níræð um helgina. Ríkissjónvarpið sinnir menningarhlutverki sínu með sóma með því að sýna franska þáttaröð þar sem stiklað er á stóru um ævintýralegt líf hennar frá táningsaldri og fram í kynbombufárið sem á sér vart hliðstæðu í heimi.