Frá Reykjavíkurborg:
–
Það er gefandi að setjast niður í hádeginu í notalegu umhverfi og fá sér góða og næringarríka máltíð. Í félagsmiðstöðvum velferðarsviðs er hægt að kaupa heitan hádegisverð alla virka daga. Á Vitatorgi við Lindargötu er hádegisverður í boði alla daga ársins, líka um helgar og hátíðisdaga.
–
- Hádegisverður (ellilífeyrisþegar og öryrkjar): 1.020 kr.
- Hádegisverður með afsláttarmiða sem fást í eldhúsi: 940 kr.
- Almennt verð: 1.640 kr.