Blaðamaður sérfróður í málefnum konungsfjölskyldunnar bresku segir að óðagot sé ríkjandi í kringum Vilhjálm prins og það starfsfólk sem aðstoðar hann í almannatengslum vegna Katrínarmálsins.
Nýjustu fréttir um að ,,sést hafi til” Katrínar og Vilhjálms nálægt heimili þeirra, í sveitaverslun hjá Windsor, eru olíu á eldinn þrátt fyrir að amatörslegt myndband hafi birst af þeim, Vilhjálmi með derhúfu og Kate brosandi í hversdagslegum sportfatnaði. Enn er dregið í efa að þetta séu raunverulega þau.
Áhugi á fréttum um Kate Middleton er meiri en áhugi á bandarísku forsetakosningunum. Trump og Biden hafa ekki roð við Kate í umfjöllun á netinu. Hér er skopmynd sem Washington Post birti af Vilhjálmi og meintum tilraunum hans til að sýna fram á að allt væri í lagi hjá þeim hjónum.