
Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur og skáld birtir ljóð sín reglulega á samfélagsmiðlum. Yfirleitt tímabærar athugasemdir um lífið. Hér er „Hundar í Bónus:
–
fór í Bónus í Árbæ
og þar gekk kona um búðina
með kerru
eins og kaupendur gera
–
og í kerrunni sat lítill
og glaðlifandi hundur
og konan gekk í átt að kassanum
–
og í samræmi við
óraunveruleik tímans
fannst mér þetta eðlilegt
–
fór að leita
fullviss um að innar í búðinni
væri hilla með prúðum hundum
–
og ég gæti tekið einn
og borgað við kassann




