
Ingvar Víkingsson, grafískur hönnuðu frá Stykkishólmi, spurði gervigreindina hvort hún gæti litað gamla ljósmynd af sér frá 1977. Gaf upp litina á svart/hvítu myndinni; „skyrtan er djúpblá með rauðum og hvítum röndum – rúllukragapeysan er hvít með rauðum röndum.“
Það tók gervigreindina augnablik að gera þetta. „Útkoman er alveg rétt,“ segir Ingvar.





