Smáríkið er að gera klárt fyrir að opna á Granda, á besta stað við hliðina á Bónus. Sagt er að Vínbúð ríkisins hafi stefnt að því að flytja víbúðina í Austurstræti í þessa byggingu en þarna hefur Smáríkið sigrað Stórríkið í kapphlaupinu.
Greint var frá væntanlegri opnun Smáríkisins á Granda hér fyrir skemmstu þar sem kostir staðsetningarinnar voru taldir upp – Bónus, Krónan, Nettó, tvö apótek þvottahús og bílaþvottastöð. Í framhaldi barst póstur frá lesanda sem bætti um betur:
–
„Ekki gleyma því að langstærsta bókabúð landsins er úti á Granda og líka besta og vandaðasta vínyl-plötubúðin. Þá er þar að finna elstu rafhjólabúðina og vinsælasta golfherminn. Ekki má heldur gleyma Jysk, Prímavera í hádeginu, Farmers market og stærsta kjarna landsins af listamanna vinnustofum, sem margir myndu ætla harðduglegan markhóp.“



