„Kæru vinir!“ segir Valur Gunnarsson rithöfundur í pósti á samfélagsmiðlum en en Valur lenti í slysi og hrakförum í Afríku eins og hér var frá greint. Og heldur áfram:
–
„Enn og aftur nálgast þessi leiðinlegasti tími mánaðar þegar reikningarnir koma inn en engin laun. Ekkert nýtt í því svosem og oftast tekst mér að ná þessu saman en þá má ekkert útaf bregða. Nú hefur hins vegar brugðið útaf. Það sem ég hélt að væri tognun reyndist vera þvagsýrugigt sem leyndi fótbrot sem þróaðist út í æðatappa. Svo kom í ljós að ég var rifbeinsbrotinn líka en maður kveinkar sér nú ekki útaf því. Frekari rannsóknir munu sennilega leiða í ljós hvers vegna ég er enn að drepast í löppinni þótt beinið eigi að vera gróið. Ég er ekki vinnufær (utandyra) og þó ég væri það hef ég engan tíma til að vinna þar sem ég er að ganga frá einni bók fyrir sumarið og annarri fyrir haustið. Það er dýrara að vera sjúklingur á Íslandi en mig hafði grunað, það var 30.000 fyrir Röntgen í Dómus, svo 30.000 fyrir ómskoðun og aftur 30.000 fyrir frekari rannsóknir, 4.000 fyrir leigubíl á slysó og 9.000 fyrir skoðun þar (ómskoðarinn keyrði mig heim), 30.000 fyrir blóðþynningarlyf. Ég á enn 400.000 frá ykkur síðan síðast en reikningarnir hljóða upp á 500.000 (meðal annars fyrir flugfarinu heim). Hélt að þetta myndi sleppa en þá munar einmitt um sjúkrakostnaðinn. Því hlýt ég að skilja þetta eftir hér:
Bnr: 513-26-201889
Kennitala: 2608763339″



