Smáríkið, vinsæl vínbúð víða á höfuðborgarsvæðinu, færir út kvíarnar og opnar nýja búð á Granda í vesturbæ Reykjavíkur í næsta mánuði. Íbúar þar taka því fagnandi því á Granda er allt til alls – Bónus, Krónan, Nettó, tvö apótek, bílaþvottastöð og þvottahús.
„Það eina sem hér vantar er „Ríkið“. Annars þyrtum við aldrei að fara neitt,“ eins og Grandabúi orðaði það.
Nú verður íbúum að ósk sinni. Smáríkið opnar og það er engin smáopnun – opið til ellefu á kvöldin á virkum dögum og til miðnættis um helgar. Bara panta á netinu og sækja svo.


