Hún klæðist hlýrabol í íslensku fánalitunum og er vinsæl samfélagsstjarna í Udon Thani í Tælandi með tvær milljónir fylgjenda. Hér er hún að kynna fiskrétt með grjónum á vefsíðu sinni í íslenska fánabolnum. En hvar fékk hún bolinn?
Erfitt er að ráða í vefsíðu hennar því alltaf er skrifað með tælenskum táknum og þannig heitir hún พรีซ ณภัคอร จิรรัชตภัค.



