HomeGreinarSPÁNARDRAUMUR NAFNLAUSU KONUNNAR

SPÁNARDRAUMUR NAFNLAUSU KONUNNAR

„Nú veit ég ekki hvort ég sé á réttri síðu með erindi mitt. Ég bið afsökunar á að koma fram nafnlaus, en það er gert með vilja til að forðast spurningar fjölskyldunnar,“ segir kona sem á sér draum um Spánarblíðu á heimasíðuni „‘Íslendingar á Spáni Costa Blanca“ – og heldur áfram:
„Ég er 64 ára og hef haft þann draum að prófa að vera á Spáni í ca 2 mánuði til reynslu, áður en stærri ákvörðun verður tekin. Ég er að hugsa um sept og október 2026. Mér hefur verið bent á að byrja svona. Ég á íbúð heima en vil ekki leigja hana fyrr en ég er búin að kanna annað. Mig langar að vera í litlum rólegum bæ þar sem ég myndi mögulega reyna að byrja að læra smávegis í málinu. Ef einhverjir hér búa í rólegum litlum bæ, og eru ánægðir, viljið þið segja mér nöfnin á bænum og hvert þá best væri að leita eftir íbúð með tveim svefnherbergjum og jafnvel tveim baðherbergjum, ef ég fengi heimsókn. Ég er þá að meina flug til Alicante og bær einhversstaðar á þessu svæði.
Kærar þakkir og bestu kveðjur.“
TENGDAR FRÉTTIR

FRJÓSEMI BERGLJÓTAR

"Ég veit ekki hvaða frjósemi er í gangi í kringum mig." segir listakonan Bergljót Arnalds og veit varla hvað hún á að halda: - "Ég fékk...

SMÁRÍKIÐ OPNAR Á GRANDA

Smáríkið, vinsæl vínbúð víða á höfuðborgarsvæðinu, færir út kvíarnar og opnar nýja búð á Granda í vesturbæ Reykjavíkur í næsta mánuði. Íbúar þar taka...

HVER ER KONAN?

Hún klæðist hlýrabol í íslensku fánalitunum og er vinsæl samfélagsstjarna í Udon Thani í Tælandi með tvær milljónir fylgjenda. Hér er hún að kynna...

WESSMANN BORGAÐI SJÁLFUR REIKNING „ENGLA ALHEIMSINS“ Í GRILLINU

Í endurminningum Wilhelms Wessmann hótel- og veitingafrömuðar er sagt frá uppákomu í Grillinu á Hótel Sögu sem rataði síðan inn í bókina Englar alheimsins eftir Einar...

DORRIT Í STUTTBUXUM Á SKÍÐUM Í ASPEN

Dorrit Moussaieff fyrrum forsetafrú er á skíðum í Aspen í stuttbuxum, birtir myndir og segir "Thank you for a great day." Dorrit er 76 ára...

FURÐULEGAR VINSÆLDIR PABBA LAUFEYJAR

Fyrir rúmum tveimur árum birtist hér frétt um Jón Þ. Sigurgeirsson föður stórstjörnunnar Laufeyjar sem þá var að taka við nýju embætti. Hún stökk...

FRIÐRIK MINNIST CHUCK NORRIS

"RIP Chuck Norris," segir Friðrik Indriðason sem eitt sinn vr kvikmyndagagnrýnandi líkt og Arnaldur bróðir hans sem síðar varð metsöluhöfundur: "Ég man eftir Chuck þegar...

HAMINGJUGANGA Í HÁDEGINU

Reykjavíkurborg efnir til hamingjugöngu í hádeginu föstudaginn 20. mars en þá er Hamingjudagur Sameinuðu þjóðanna þar sem bæði hamingjunni og krafti trjánna verður fagnað....

ELDISFISKAR ERU LÍKA DÝR

"Slæmt ástand eldisdýra er til umfjöllunar í fréttum Rúv. Ráðherra bregst við, það er gott," segir Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir: - "Ástæða er til...

VALDI VILL ÞENNAN Í VAXTAUMHVERFIÐ NÚNA

Valdimar Tómasson ljóðskáld lætur sér ekki nægja að gefa út ljóðabækur og selja, hann safnar ritmáli líka. Það nýjasta er frá Sögusafni heimilanna: "Við þurfum...

BJARGVÆTTURINN Í ÖLFUSÁ

Aðfaranótt 6. september 1944 féll Ölfusárbrúin gamla við Selfoss og tveir vörubílar fóru í ána. Annar bíllinn lenti a grynningum en hin fór á...

VALUR UNDIRITAÐI ÚTGÁFUSAMNING Í LONDON EFTIR HRAKFARIR Í AFRÍKU

Valur Gunnarsson rithöfundur skrifaði á dögunum undir bókasamning við Sölku í London. Þangað kom hann frá Nairóbí í Kenía þar sem hann hafði setið...

Sagt er...

Lag dagsins

Elton John er 79 ára í dag. Elton hefur skemmt heimsbyggðinni með söng og leik síðan á áttunda áratug síðustu aldar og er enn...