„RIP Chuck Norris,“ segir Friðrik Indriðason sem eitt sinn vr kvikmyndagagnrýnandi líkt og Arnaldur bróðir hans sem síðar varð metsöluhöfundur:
„Ég man eftir Chuck þegar ég skrifaði kvikmyndagagnrýni á barnsárum blaðamennsku minnar. NB á síðustu öld. Hann átti góðu senu á móti Bruce Lee í einni bestu kungfu mynd hins síðarnefnda. Síðan hallaði undan fæti og kappinn endaði í sjónvarpsseríu um einhvern kúreka í Texas.
En Kanar elskuðu Chuck enda gekk kúrekaserían árum saman. Og það var alltaf hægt að elska kappann. Ég man að ég rakst á eina af þessum Expendables myndum Stallone (á YouTube) þar sem Chuck fór með aukahlutverk. Og svei mér þá hann alveg brilleraði sem, í raun, hann sjálfur.“



