Reykjavíkurborg efnir til hamingjugöngu í hádeginu föstudaginn 20. mars en þá er Hamingjudagur Sameinuðu þjóðanna þar sem bæði hamingjunni og krafti trjánna verður fagnað. Rannsóknir benda til þess að trjágróður styðji við andlega heilsu; gönguferð í skógi eða það af hafa útsýni á tré úr glugga getur dregið úr kvíða, streitu og hreinlega bætt skapsmuni.

Gangan hefst í Fógetagarðinum og endar við Háskóla Íslands. Gleðigjafinn Edda Björgvinsdóttir leiðir gönguna ásamt Ingrid Kuhlman og Margréti Leifsdóttur með dyggri aðstoð Bjarkar Þorleifsdóttur úr Grasagarði Reykjavíkur.
Gengið verður um miðborg Reykjavíkur, stoppað verður við söguleg og merkileg tré, og á meðan á göngunni stendur verður staldrað við og viðstöddum gefinn tími til að anda, hlusta, njóta og fanga hamingjuna – jafnvel í miðri borginni. Þátttakendur eru beðnir um að klæða sig eftir veðri. Aðgangur ókeypis.







