Valur Gunnarsson rithöfundur skrifaði á dögunum undir bókasamning við Sölku í London. Þangað kom hann frá Nairóbí í Kenía þar sem hann hafði setið við skriftir þar til hann fótbrotnaði í mótorhjólaslysi eftir að hraðbanki hafði étið kortið hans.
Valur var þarna í vanda eins og greint var frá í frétt á Vísi „Fótbrotinn og févana í Afríku“.
Allt er gott sem endar vel. Valur komst til London að hitta útgefendur sína hjá Sölku og samningurinn í höfn.






