Jón Karl Ólafsson fyrrum forstjóri Icelandair hefur áhyggjur af því að félagið verði keypt á spottprís miðað við gengi í dag og lagt niður.
Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir kann ráð til bjargar, líkt og í hruninu, og segir:
„Sagt er að verðmæti hlutafjár Icelandair á markaði sé nú minna en upplausnarvirði félagsins með sölu eigna þess. Félagið er án vafa “þjóðhagslega mikilvægt.” Samgönguráðherra lýsti áhyggjum af stöðunni, sem gerir félagið berskjaldað fyrir yfirtöku. Af þessu tilefni vek ég máls á aðferð til að “valda” stöðuna og það þarf að gera strax:
Lánardrottnar, venjulega viðskiptabanki félagsins, lána félaginu fyrir hlutafjárframlagi í nýtt dótturfélag, sem tekur allan reksturinn á leigu á eðlilegum, óriftanlegum kjörum, í nógu langan tíma til að móðurfélagið geti örugglega lokið fjárhagslegri endurskipulagningu. Bankinn tekur um leið handveð í hlutafé dótturfélagsins, sem er líka óriftanlegt, af því að nýtt làn fylgdi. Verðmæti rekstrarins, dótturfélagsins, er áfram í eigu móðurfélagsins og til ráðstöfunar til kröfuhafa þess ef allt fer á versta veg. Með þessu er félaginu komið í öruggt skjól fyrir tilboði um yfirtöku til niðurrifs eða til samruna við félagið sem stendur að tilboðinu.
Í kjölfarið yrði farið vandlega yfir tækifæri félagsins til úrbóta í rekstrinum, með samanburði við þau flugfélög sem keppa á sama markaði og eru að ná betri árangri í rekstri.