Reykjavíkurborg leitar nú eftir áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka þátt í verkefninu Torg í biðstöðu 2026. Almenningsrýmin í borginni samanstanda ekki bara af torgum og görðum. Borgin lifir líka í rýmunum inni á milli, eins og á milli húsa, við jaðra lóða, í portum, bakgörðum, gangstéttum og öðrum áhugaverðum en ekki alltaf vel skilgreindum svæðum. Í sumar leitar Reykjavíkurborg að hugmyndum sem beina sjónum okkar að þessum rýmum borgarinnar.
Hvernig getur líf kviknað þar sem lítið virðist um að vera? Hvað gerist þegar við hægjum á okkur og skoðum rýmin sem við göngum vanalega framhjá?
-
-
- Kannski verður til staður til að sitja þar sem enginn settist áður?
- Kannski breytist port í samkomustað?
- Kannski verður auður blettur að rými til að eyða tíma?
-
Markmiðið er ekki fullkomin lausn heldur spurning: Hvað gæti gerst hér?
Umsókn fer fram með rafrænum hætti í gegnum Mínr síður. Umsóknarfrestur er út mánudaginn 20. apríl 2026.






