HomeGreinar"TUNNU!" HRÓPUÐU SÍLDARSTÚLKURNAR

„TUNNU!“ HRÓPUÐU SÍLDARSTÚLKURNAR

Allt á fullu á planinu.
Allt á fullu á planinu.

Á síldarárunum fyrir norðan og austan voru síldartunnur ómissandi og mátti ekki missa úr dag. Því á síldarplönunum hrópuðu síldarstúlkurnar í kór – ein eða allar: „Tunnu!“ Þær voru snöggar að fylla þær. Launin voru mæld í söltuðum tunnum.

Jói Listó veit hvað er að gerast á þessari mynd:

Jói Listó.
Jói Listó.

„Líklega verið að flytja tunnur frá Akureyri til Raufarhafnar eða Austfjarða. Stór hluti af tunnum var fluttur snemmsumars með skipum frá Akureyri og eða Siglufirði áður en söltun hófst.

Svo var stundum veiði mjög mikil, söltun á fullu jafnvel allan sólarhringinn sólarhringum saman. Þá var upphaflegi tunnulagerinn fljótur að hverfa. Ekkert skip til að flytja tunnur á lausu og þá þurfti að grípa til þess ráðs að nota vörubíla landleiðina.

Ég man að á árunum eftir 1960 voru svona fluttningar nokkuð algengir. Ef verið var að fara til Austfjarða þá var farartálmi sem var gamla stálgrindabrúin yfir Skjálfandafljót við Fosshól. Í hverjum bíl var stundum aukamaður til að hjálpa bílstjóranum vegna þess að þegar komið var að fyrrnefndri brú varð að lækka tunnufarminn un eina, jafnvel tvær tunnuraðir. Tunnunum rúllað og eða bornar yfir brúna og komið fyrir aftur á sínum stað. Þetta var geysimikil vinna, erfið og tímafrek.“

TENGDAR FRÉTTIR

STJÖRNUSPEKINGUR UM STÓRSTJÖRNU

Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur birti í kvöld stjörnuspá í tilefni af andláti Björgvins Halldórssonar - sem var og verður alltaf stjarna: - Hrútur, einyrki, skemmtikraftur og gleðigjafi. Beinskeyttur:...

BENSÍNSJOPPAN SEM SPRAKK

Frá Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði: - Það hefur gengið á með lægðum, óveðrum, tilheyrandi ófærð og sem betur fer einstaka góðviðrisdögum undanfarnar vikur sem hefur haft...

GAMLIR OG GLÚRNIR FERÐAKÓNGAR

Ferðaskrifstofan Ævintýraferðir Örnólfs hefur skipulagt ferðir og kynnt langt fram á næsta haust. Á bak við Ævintýraferðir stendur Örnólfur Árnason, landsþekktur rithöfundur og lífskúnstner,...

ÁRITUÐ BÓK DAVÍÐS TIL ÓLAFS RAGNARS Á UPPBOÐI

Eintak af bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, er á bókauppboði Foldar. Eintakið er áritað af Davíð til þáverandi forsetahjóna, Ólafs Ragnars...

MÓÐIR JÖRÐ FÓTBROTIN Á LANDSPÍTALA

Verkið Móðir jörð eftir Ásmund Sveinsson, sem er staðsett í gamla anddyri Landspítalans í Fossvogi á annarri hæð, er illa farið. Bæði móðir og...

70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Eftirmál, sem fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi stýra, vakti mikla athygli yfir páskana. Í þættinum er fjallað um morðið á...

VOPNAHLÉ – „RISASPARK Í PUNGINN“

"Jedúddamía. Hópur af geitasmölum í Íran hefur sigrað mesta herveldi sögunnar," segir Friðrik Indriðason, þrautreyndur blaðamaður, í tilefni af fréttum dagsins: - "Það sem Íran fær...

MÚSAGILDRUR GEGN VASAÞJÓFUM

Vasaþjófar herja á erlenda ferðamenn hér á landi og eru til vandræða. Friðrik Brekkan, þrautreyndur leiðsögumaður, er með lausn: "Þessar sterku músagildrur fást í Kemi....

FINNSK PÁSKAEGG

Svona páskaegg er hægt að fá í Finnlandi. Líta út eins og venjuleg egg í eggjabakka frá súkkulaðiframleiðandanum Fazer. Svo er skurnin fjarlægð og...

SNJÓKARLINN Á BEKKNUM

Miðbæjarlistin tekur á sig ýmsar myndir í Reykjavík. Hér situr snjókarl á bekk fyrir framan Drekann, söluturn á Njálsgötu. Líkt og blindfullur um miðjan...

HÁRHORNIÐ HREKST AF HLEMMI VEGNA HÚSALEIGU

Ein vinsælasta og ódýrasta rakarastofa Reykjavíkur, Hárhornið á Hlemmi, flytur sig um set eftir 29 ára á horninu á Hlemmi. Ástæðan er hækkandi húsaleiga...

MALAGAFANGA SLEPPT – MILDI OG MANNÚÐ

Páskaskeyti frá Malaga: - Á miðvikudaginn, daginn fyrir skírdag, var fanga sleppt í Malaga á Spáni. Þó ekki íslenska Malagafanganum, enda er hann fyrir löngu sloppinn....

Sagt er...

Veitingastaðurinn Forsetin á Laugavegi hefur verið seldur. Kaupandinn er úkraínskur kaupsýslumaður sem ætlar að halda rekstrinum áfram. Helgi Njálsson hefur rekið Forsetann ásamt konu...

Lag dagsins

Á þessum degi, 10. apríl 1912, lagði Titanic úr höfn í Southamton á Englandi í sína fyrstu ferð með stefnuna á New York. Þessi...