Hinn árlegi Ljósafoss rennur niður hlíðar Esjunnar næsta laugardag. Það er Ljósið – endurhæfingar – og stuðningsmiðstöð krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra sem stendur fyrir göngunni:
„Við hittumst á bílastæðinu við Esjuna kl.15:30 og leggjum af stað kl.16:00 upp að Steini. Þaðan munum við svo ganga niður með höfuðljósin kveikt og mynda fallegan Ljósafoss í þann mund sem myrkrið skellur á. Á leiðinni niður göngum við í þögn til að minnast þeirra sem við höfum misst í baráttunni við krabbamein og þeirra sem standa í þeirri baráttu núna.
Í tilefni af 20 ára starfsafmæli Ljóssins, verður Ljósafossinn enn glæsilegri en áður! Á svæðinu verður hinn vinsæli Möndluvagn með ilmandi möndlur og heitt kakó til sölu, þar sem 30-40% af verðinu rennur til Ljóssins. Ljósið verður einnig með falleg kerti til sölu, skreytt broti úr ljóði eftir Siggu Soffíu. Kertin kosta 4.500 krónur og allur ágóði rennur til Ljóssins.
Veðurspáin á laugardaginn er fullkomin fyrir fjallgöngu. Þetta er því tilvalið tækifæri til að fá sér ferskt loft, hreyfingu og styðja gott málefni. Taktu fjölskylduna, börnin og vinina með, það eru allir velkomnir.
Þorsteinn Jakobsson fjallagarpur leiðir gönguna eins og undanfarin ár og björgunarsveitin Kjölur verður á staðnum. Síðustu ár hefur Ljósinu borist liðsstyrkur frá öflugum samstarfsaðila í undirbúningi og framkvæmd Ljósafossins en að þessu sinni ætlar Sjóvá að styrkja Ljósið um 2.000 kr. fyrir hvern þann sem hittir okkur við Esjurætur hvort sem þeir leggja á fjallið eður ei.
Þau sem treysta sér ekki upp fjallið eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomin að hitta okkur við Esjuna, það eitt að mæta og standa með okkur skiptir máli. Við hvetjum alla gönguhópa og fjallagarpa að reima á sig gönguskóna og hjálpa okkur að láta Ljósið skína.“


