HomeGreinarBERNAISE SÓSAN OG ÚTLENDINGARNIR Á ÍSLANDI

BERNAISE SÓSAN OG ÚTLENDINGARNIR Á ÍSLANDI

Tommi segir:
Bernaise sósa er talin vera með fínni sósum og gjarnan höfð spari sérstaklega með nautasteikum en líka bara með hverju sem er.
Búllan selur mikið af bearnaise sósu.  Það er mikið nákvæmnisverk að hræra bernes eins og hún er kölluð dags daglega.
Fyrst hrærir maður eggjarauður í volgri skál í vatnsbaði með salti og svokölluðum bernes essens þangað til það verður kremað. Svo er helt út í bráðnu niðursoðnu smjöri
Vandinn er að hella smjörinu hægt og rólega út í því annars á sósan það til að skilja sem þýðir að eggin og smjörið ná ekki saman. En það gerist og alls ekki óalgengt þegar fólk er að læra að laga sósuna. En æfingin skapar meistarann.  Stundum sér maður að hún er að fara að skilja sig og þá er mikil kúnst að hræra þann part sósunnar sem er enn í lagi til að ná henni saman aftur áður en hún skilur sig alveg.
Ég vil líkja því að hræra bernes sósu við fjölgun útlendinga því mér sýnist að þeir hafi komið of margir of hratt.  Sumir hafa ekki náð að samlagast okkar þjóðfélagi. Við höfum misst tökin á svokallaðri inngildingu þ.e. fólk sem við þurfum vissulega á að halda í okkar landi en hefur ekki fengið þær móttökur sem það á skilið. Því eru margir þeirra svolítið utanveltu á íslandi. Ekki þeim að kenna, þau eru velkomin en við höfum svoldið misst stjórn á fjölguninni.
Kapp er best með forsjá, en svona er nú lifið stundum.
TENGDAR FRÉTTIR

STOLTUR FAÐIR FRAMBJÓÐANDA

"Þetta er hún dóttir mín. Hún er föðurbetrungur," segir Helgi Magnús Gunnarsson, landsþekktur fyrrum vararíkisaksóknari, en dóttir hans, Agnes Sólbjört Helgadóttir, skipar 7. sætið...

KJARTAN SKOÐAR TOYOTA MEÐ SYNI SÍNUM

Bílaáhugamaður sendir myndskeyti: - Var á sýningu hjá Toyota sem bauð upp á bíla, kókakóla, frostpinna, kleinur, rúnstykki og kjúklingaspjót. Þar sá ég þessa tvo og...

PÁSKADAGUR Í RÚSSNESKU RÉTTTRÚNAÐARKIRKJUNNI

"Í dag er páskadagur hjá Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni sem ég er meðlimur í," segir Arnar Loftsson og birtir mynd af rússneskum páskamorgunverði sem eiginkona hans,...

STJÖRNUSPEKINGUR UM STÓRSTJÖRNU

Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur birti í kvöld stjörnuspá í tilefni af andláti Björgvins Halldórssonar - sem var og verður alltaf stjarna: - Hrútur, einyrki, skemmtikraftur og gleðigjafi. Beinskeyttur:...

BENSÍNSJOPPAN SEM SPRAKK

Frá Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði: - Það hefur gengið á með lægðum, óveðrum, tilheyrandi ófærð og sem betur fer einstaka góðviðrisdögum undanfarnar vikur sem hefur haft...

GAMLIR OG GLÚRNIR FERÐAKÓNGAR

Ferðaskrifstofan Ævintýraferðir Örnólfs hefur skipulagt ferðir og kynnt langt fram á næsta haust. Á bak við Ævintýraferðir stendur Örnólfur Árnason, landsþekktur rithöfundur og lífskúnstner,...

ÁRITUÐ BÓK DAVÍÐS TIL ÓLAFS RAGNARS Á UPPBOÐI

Eintak af bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, er á bókauppboði Foldar. Eintakið er áritað af Davíð til þáverandi forsetahjóna, Ólafs Ragnars...

MÓÐIR JÖRÐ FÓTBROTIN Á LANDSPÍTALA

Verkið Móðir jörð eftir Ásmund Sveinsson, sem er staðsett í gamla anddyri Landspítalans í Fossvogi á annarri hæð, er illa farið. Bæði móðir og...

70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Eftirmál, sem fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi stýra, vakti mikla athygli yfir páskana. Í þættinum er fjallað um morðið á...

VOPNAHLÉ – „RISASPARK Í PUNGINN“

"Jedúddamía. Hópur af geitasmölum í Íran hefur sigrað mesta herveldi sögunnar," segir Friðrik Indriðason, þrautreyndur blaðamaður, í tilefni af fréttum dagsins: - "Það sem Íran fær...

MÚSAGILDRUR GEGN VASAÞJÓFUM

Vasaþjófar herja á erlenda ferðamenn hér á landi og eru til vandræða. Friðrik Brekkan, þrautreyndur leiðsögumaður, er með lausn: "Þessar sterku músagildrur fást í Kemi....

FINNSK PÁSKAEGG

Svona páskaegg er hægt að fá í Finnlandi. Líta út eins og venjuleg egg í eggjabakka frá súkkulaðiframleiðandanum Fazer. Svo er skurnin fjarlægð og...

Sagt er...

Tímaritið Myndlist á á Íslandi, 6. tölublað, er komið út: Áhrif myndlistar 2025. Tímaritið, sem er gefið út á íslensku og ensku, veitir innsýn í...

Lag dagsins

Rúnar Júlíusson tónlistarmaður (1945-2008) hefði orðið 81 árs í dag. Rúni Júl var stjarnan í Hljómum sem var besta og vinsælasta hljómsveit landsins á...