HomeGreinarGIULIA RANNSKAR LITI Í HANDRITUNUM - GULUR, RAUÐUR GRÆNN OG BLÁR

GIULIA RANNSKAR LITI Í HANDRITUNUM – GULUR, RAUÐUR GRÆNN OG BLÁR

Doktorsneminn Giulia Zorzan er að rannsaka litað blek sem notað var í elstu íslensku handritunum frá 12. og 13. öld. Hún leggur meginþungann á að skoða mismunandi þætti sem litir þjóna í uppsetningu hverrar síðu. Í raun hlýtur það að teljast með ólíkindum að enn skuli vera unnt að rýna og lesa texta sem ritaður var á bókfell fyrir um átta hundruð árum – hvað þá að hægt sé auðveldlega að greina sundur liti með berum augum. Giulia skoðar einmitt hvernig litur á bleki er notaður sem nokkurs konar lykill að sjálfum textanum. Hún beinir líka sjónum sínum að gæðum litarefna sem notuð voru á þessu fyrsta tímabili íslenskrar handritagerðar.

„Ég er aðallega að vinna með notkun á rauðum, grænum, bláum og gulum litum í titlum, upphafsstöfum og í öðrum textafræðilegum þáttum,“ segir Giulia sem er fædd á Ítalíu og er með MA-gráðu í norræni textafræði frá Háskólanum í Mílanó. Áhugi hennar á íslenskri menningu og handritum kviknaði þegar hún var skiptinemi við Háskólann í Lundi í Svíþjóð.  Sjá nánar hér.

TENGDAR FRÉTTIR

ÓKEIPISS ER ÓKEYPIS MYNDASÖGUBLAÐ

Hugleikur Dagsson og Nexus kynna Mydasöguáskorun 2026 í tilefni af útkomu nýs tölublaðs Ókeipiss 2. maí. Ókeipiss er ókeypis myndasögublað sem kemur út á...

GUÐNI EIGNAST RÚSSAJEPPA

Fregnir herma að Guðni Ágústsson sagnameistari og fyrrum formaður Framsóknarflokksins hafi eignast Rússajeppa árgerð 1966. Bíllinn verður sprautaður grænn og fær númerið X6.  

NÝ VIKUTÍÐINDI – BAKSÍÐAN 1963

Ný vikutíðindi var vikublað sem keppti við annað og stærra, Mánudagsblaðið, upp úr miðri síðustu öld. Blöðin seldust í bílförmum í sjoppum enda lítið...

DÖMURÍKIÐ Á LAUGARÁSVEGI

Vínbúðin á Laugarásvegi um 1970, einskonar umsátursástand. Bílum lagt út um allt, engar stöðumælasektir og búðin sjálf pakkfull af fólki - eins og síld...

DAÐI SELUR GULA GULLMOLANN Á NÝLENDUGÖTU

Daði Guðbjörnsson listmálari og eiginkona hans hafa sett einýlishús sitt á Nýlendugötu, rétt ofan við Reykjavíkurhöfn, á sölu. Húsið er áberandi í hverfinu, stendur...

ALMENNINGSGARÐUR Í BREIÐHOLTI POPPAÐUR UPP

Reykjavíkurborg leitar eftir hugmyndum frá íbúum til að að bæta almenningsgarðinn í Efra-Breiðholti, sem liggur milli Fella- og Hólabrekkuskóla. Reykjavíkurborg og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti ásamt...

NASISTI HRELLIR SVAVAR KNÚT

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur segir farir sínar ekki sléttar. Þýskur öfgamaður reynir að hafa áhrif á tónleikahaldara sem tengjast væntanlegu tónleikahaldi hans og hvetur þá...

SIGMUNDUR DAVÍÐ Á AFMÆLI Í DAG

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er afmælisbarn dagsins (51). Fæddur í Reykjavík 12. mars 1975. Foreldrar: Gunnlaugur M. Sigmundsson (fæddur 30. júní 1948) cand. oecon.,...

ÓLAFUR RAGNAR MEÐ UPPISTAND Á FUNDI ÞINGNEFNDAR UM FORSETARITARA

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum forseti Íslands var kallaður á fund stjórnskipunar - og eftirlitsnefndar Alþingis í gær til að ræða fyrirhugaðar breytingar á ráðningu...

SVONA Á AÐ BJARGA ICELANDAIR

Jón Karl Ólafsson fyrrum forstjóri Icelandair hefur áhyggjur af því að félagið verði keypt á spottprís miðað við gengi í dag og lagt niður. Ragnar...

BJÖRN FORSETAMAKI SETUR STÓRA PLOKKADAGINN

Stóri plokkdagurinn 2026 verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl næstkomandi. Björn Skúlason forsetamaki mun setja Stóra plokkdaginn formlega kl. 10:30 en Björn steig...

YNDISLEGT Í ESB

Að gefnu tilefni hefur Ómar Sigurðsson þetta til málanna að leggja: "Yndislegt í ESB. Kaffibollinn á 150 krónur, bjórinn á 200 krónur og íspinninn á...

Sagt er...

Pirraður bíleigandi sendir skeyti: - Ég átti því miður erindi í miðborg Reykjavíkur og hugðist leggja í bílakjallara ráðhússins. FULLT stóð á skilti við innkeyrsluna. Ég gerði...

Lag dagsins

„56 ár smakkast bara ágætlega, takk fyrir,“ segir stórstjarnan Páll Óskar sem á afmæli í dag, fæddur 1970. Mánuði eftir fæðingu Páls Óskars tilkynnti...