Bette Davis (1908-1989) var skærasta stjarna kvikmyndanna á fyrri hluta síðustu aldar – The Golden Age of Hollywood eins og það var nefnt. Tvisvar fékk hún Óskarinn fyrir tilþrif sín á hvíta tjaldinu og lék yfirleitt slóttuga konu sem keðjureykti bæði í kvikmyndunum og prívat en komst þó á níræðsaldur áður en yfir lauk. Bíógestir elskuðu hana samt og þá sérstaklega í kvikmyndunum All About Eve og Human Bondage.