Brad Pitt vakti mikla athygli þegar hann mætti á Santa Barbara International Film Festival í gærkvöldi. Ekki bara vegna klæðnaðar en Brad var með hornspangargleraugu og klæddur í brúnt frá toppi til táar, heldur fékk orðrómur um meinta andlitslyftingu hans þarna byr undur báða vængi. Húðin aldrei sléttari þó sextíu ár séu að baki. Þeir áköfustu þóttust merkja ör við eyra sem er fylgifiskur anlitslyftinga. Sjá nánar hér.
Kom þá upp í hug viðstaddra hlutverk hans í kvikmyndinni um Benjamin Button sem eltist aftur á bak.