
„Það gleður mjög að segja frá því að á sunnudaginn kemur bætast þrír þjónar við í dýrmætan hóp vígðra þjóna Þjóðkirkjunnar, segir Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands:
„Vígðar verða til prests Elísa Mjöll Sigurðardóttir mag. theol, sem ráðin hefur verið til sóknarprestsþjónustu við Breiðafjarðar og Strandaprestakall í Vestfjarðaprófastsdæmi og Margrét Rut Valdimarsdóttir mag. theol. sem ráðin hefur verið til héraðsprestsþjónustu í Húnavatns og Skagafjarðarprófastsdæmi með sérstakar skyldur við Skagaströnd.
Eva Lín Traustadóttir verður vígð til djáknaþjónustu við Tjarnaprestakall í Kjalarnesprófastsdæmi.
Allar þrjár útskrifuðust nú í sumar frá Guðrfræði og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Vígslan verður í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 24. ágúst kl. 11 og er öllum opin.
Guð blessi helga þjónustu þeirra.“



