HomeGreinarBJARNI BJARGAÐI SÁÁ

BJARNI BJARGAÐI SÁÁ

Arnþór Jónsson fyrrum formaður SÁÁ.
Arnþór Jónsson fyrrum formaður SÁÁ.

„Það er með hreinum ólíkindum hvernig hatramir andstæðingar Bjarna Benediktsson hafa talað um manninn, sérstaklega núna þegar hann víkur af þingi og hættir sem formaður Sjálfstæðisflokksins,“ segir Arnþór Jónsson sellóleikari sem var formaður SÁÁ um sjö ára skeið:

„Nokkrir pólitíkusar hafa á undanförnum árum verið með mikinn gauragang á þingi og reynt að slá sjálfa sig til riddara sem eindregna stuðningsmenn SÁÁ. Oftast hefur þetta verið óttalegt suð í fólkinu, göfgiþrá og sjálfhverf gagnslaus tilfinningavella.
Staðreyndin er sú að enginn stjórnmálamaður gerði jafn mikið fyrir SÁÁ og Bjarni Benediktsson. Segja má að á sínum tíma, þegar hann var nýorðinn fjármálaráðherra 2014, hafi hann hreinlega bjargað fjárhag SÁÁ og gert samtökin rekstrarhæf.
Það gerði hann með því að leysa áralangar deilur um uppsafnaðar lífeyrissjóðsskuldbindingar úr svokölluðum b-hluta LSR. Skuldin var sligandi í bókhaldinu, um átta hundruð milljónir og töldu endurskoðendur að samtökin væru í raun ekki rekstrarhæf.
En Bjarni hjó á þennan hnút fljótlega eftir að hann tók við fjármálaráðuneytinu, nokkuð sem enginn fyrirrennara hans hafði haft vilja eða getu til að gera, og leysti SÁÁ úr þessum bókhaldsfjötrum.“
TENGDAR FRÉTTIR

ÁSTFANGNAR Í 32 ÁR

Í dag er hátíðsdagur hjá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Ragnhildi Sverrisdóttur. Ráðherrann smellti af lyftumynd í tilefni dagsins og segir: "Ég eignaðist kærustu fyrir...

FRIÐRIK HITTI SVÍAKONUNG Í SPORVAGNI Í GAUTABORG FYRIR 48 ÁRUM

"Þann 26. október 1978 þegar ég var í námi og starfi í Gautaborg tók ég sporvagn frá miðborg Gautaborgar upp til úthverfisins Angered til...

BRYNJAR ÓÁNÆGÐUR MEÐ NÝJA BÍLINN

"Nú er ég kominn á nýjan bíl," segir Brynjar Níelsson og er alls ekki ánægður með hann: - "Stöðugar athugasemdir um aksturslag mitt með háværu pípi,...

AFI BJARGAR – DAVÍÐ SCHEVING

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í væntanlegum borgarstjórnarkosningum er barnabarn athafnamannsins og iðnrekandans Davíðs Schevings Thorsteinssonar (1930-2022). Íslendingar geta þakkað Davíð Scheving fyrir bjórinn þegar...

GEGGJUN Í GUFUNESI

Þessi kaldranalega mynd birtist með frétt á vefnum grafarvogur.net sem fjölmiðlamaðurinn Jón G. Hauksson rekur. - "Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir, eigendur Loftkastalans í...

FLJÓTANDI GUFUBAÐ Í FJALLABYGGÐ

"Verkefnið okkar er að setja niður fljótandi gufubaðsklefa á Ólafsfjarðarvatn í landi Brekkulands. Við teljum að þetta verði frábær viðbót við fjölbreytt úrval heilsu-...

LAUFEY OG JÚNÍA 54 ÁRA SAMTALS

Stórstjarnan Laufey Lin og tvíburasystir hennar, Júnía Lin, áttu afmæli síðastliðinn fimmtudag, 23. apríl - 27 ára. Samtals 54 ára eins og sést á...

„ÁFRAMHALDANDI STERK STAÐA REYKJAVÍKURBORGAR“

Ársreikningur Reykjavíkurborgar lagður fram. Í tilkynningu frá borginni segir meðal annars: - Áframhaldandi sterk staða Reykjavíkurborgar ...rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er jákvæð um 8 milljarða króna...

BUBBABÚÐ Á NETINU

Bubbi Morthens hefur opnað vefverslun í tilefni af afmælistónleikum sínum í Laugardalshöll í júní þegar hann verðir sjötugur. Vefverslun Bubba byður upp á allskyns sérmerktan...

AUÐUR JÓNS SRIFAR ÆVISÖGU INGIBJARGAR SÓLRÚNAR

Auður Jónsdóttir rithöfundur vinnur nú að ritun ævisögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrum untanríkisráðherra, borgarstjóra og formanns Samfylkingarinnar. Verkið er komið á veg en löng...

HEIMSPEKINGUR SELUR HÚS

Eyjólfur Kjalar Emilsson heimspekiprófesssor í Osló um margra ára skeið, nú á eftirlaunum, hefur ásamt konu sinni sett glæsilega íbúð á Nýlendugötu 6 a...

STEINUNN ÓLÍNA UNDIRBÝR FANGELSISVIST

"Ég þrái heimboð til ykkar á Hólmsheiðina vinir mínir áður en mér verður stungið þar inn. Langar að hitta endurnar lík," segir listakonan og...

Sagt er...

Flokkur fólksins býður í hátíðarkaffi í tilefni 10 ára afmælis flokksins í Fjörgyn 1 í Grafarvogi sunnudaginn 3. maí kl. 13:00. Boðið verður upp á...

Lag dagsins

Kántrýkóngurinn Willie Nelson er afmælisbarn dagsins, 93 ára og enn í fullu fjöri þegar síðast fréttist. Hann hefur selt plötur í tonnavís, þekktur fyrir...