Íbúi á þriðju hæð á Grettisgötu 71 er með fallegar blómaskreytingar á svölunum en hefur nú bætt við gosbrunni sem slútir fram yfir svalahandriðið og hangir þar á tveimur vinklum. Þetta veldur ugg meðal nágranna og einn orðar það þannig:
„Ég sá að þetta var tveggja manna tak að bera gosbruninn upp. Með bara þessari þyngd plús fallþungi af þaki, snjór og vatn, þá mun þetta aldrei tolla við húsið. Vonandi veður enginn á gangstéttinni þegar það gerist.“