Athafnaskáldið og nú vatnskóngurinn Jón Ólafsson er afmælisbarn dagsins (70). Hann getur litið um öxl á litríkan feril sem tók á sig ýmsar myndir og tekur enn. Eins og þegar hann var kenndur við Skífuna og datt í hug að safna saman helstu tónlistarmönnum landsins og gefa úr metsöluplötu en bandið kallaði hann Brunaliðið. Smellirnir af plötunni lifa flestir enn góðu lífi: