„Verkstjóri, prentari og sjómaður hlutu happdrættisvinninga DAS, sem voru að þessu sinni vélbátúrinn Búlandstindur, Fordbifreið og Vespabifhjól,“ segir í Sjómannadagblaðinu Víkingi 1. júní 1956. Ekki kemur fram hver hlaut hvaða vinning né hver þau eru sem taka við vélbátnum Búlandstindi á þessari mynd en glæsileg eru þau.