HomeGreinarFORSÆTISRÁÐHERRA BÝÐUR UPP Á 8.000 BOLLAKÖKUR Á 17. JÚNÍ

FORSÆTISRÁÐHERRA BÝÐUR UPP Á 8.000 BOLLAKÖKUR Á 17. JÚNÍ

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður boðið upp á fjölbreytta og veglega dagskrá í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá því að Ísland varð lýðveldi. Skrúðganga verður frá Hallgrímskirkju, tónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar í Hljómskálagarði og á Klambratúni svo fátt eitt sé nefnt.

Morgundagskrá á Austurvelli

Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefst á Austurvelli kl. 11:10 en henni verður sjónvarpað og útvarpað á RÚV. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, flytur hátíðarræðu. Fjallkonan flytur ávarp en ávallt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til á hátíðarathöfninni.

Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar forseta og Ingibjargar Einarsdóttur konu hans. Lúðrasveitin Svanur leikur við athöfnina.

Skrúðganga 

Klukkan 13:00 leiða skátar glæsilega skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju að hátíðarsvæðinu í Hljómskálagarði. Í skrúðgöngunni kennir ýmissa grasa og má búast við að furðuverur muni láta sjá sig í göngunni, sirkuslistafólk leikur listir sínar og Lúðrasveit verkalýðsins leikur undir. Skemmtidagskrá verður einnig á Klambratúni.

Í Hljómskálagarðinum verður fjölbreytt dagskrá fyrir öll og ætti engum að leiðast, dans, sirkus og hoppukastalar. Hljómsveitin Celebs, Páll Óskar, Teitur Magnússon og Una Torfa ásamt hljómsveit verða á stóra sviðinu í Hljómskálagarðinum. Á Klambratúni verður boðið upp danssýningu frá Dans Brynju Péturs, Sirkus Ananas bregður á leik fyrir yngstu börnin, matarvagnar og DJ Fusion Groove sér um að halda uppi stemningunni. Harmonikufélag Reykjavíkur verður svo með alvöru ball í Ráðhúsi Reykjavíkur. Dagskrá lýkur klukkan 17:00.

Kórsöngur og 8000 bollakökur

Á Austurvelli verður boðið upp á sönghátíð þar sem 6 kórar flytja sönglög frá klukkan 13:00-16:00. Á sama tíma geta gestir og gangandi gætt sér á 8000 lýðveldisbollakökum og kaffi, á Parliament Hotel, í boði forsætisráðuneytisins og Reykjavíkurborgar

TENGDAR FRÉTTIR

ÍSBJÖRNINN Í JÖKULFJÖRÐUM SKOTINN

Nú rétt fyr­ir kl. 16.00 á fimmtudegi var hvíta­björn, sem gekk hafði á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum aflífaður. Lög­regl­an á Vest­fjörðum grein­ir frá...

LANDNÁM ÍSLANDS Á PÓLSKU

Borgarsögusafnið býður upp á leiðsögn á pólsku í Landnámssýningunni í Aðalstræti sunnudaginn 22. september kl. 14:30. Marta Wieczorek, Reykvíkingur ársins og aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í...

HELGI VILL SLAUFA KJÖRÍS

"Það er ekki um annað að gera en við verðum að hætta að kaupa Kjörís," segir Helgi Jóhann Hauksson fyrrum kennari og ljósmyndari úr...

ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – GÍSLI MARTEINN!

"Þetta er allt að koma," segir fjármálaráðherra við sig og aðra nokkrum sinnum á dag. Og hann hefur nokkuð til síns máls: Gísli Marteinn...

EF ÞÚ GETUR BROTIÐ GLERIÐ MÁTTU EIGA PENINGANA

Kanadíska fyrirtækið 3M framleiðir skothelt gler - óbrjótanlegt gler. Það lét ramma 3 milljónir dollara inn í glervegg í strætisvagnaskýli með skilaboðunum: "Ef þú...

REIÐHJÓL Í RÁÐHÚSI

Reykjavíkurborg tilkynnir - Fjölmargir gripir úr sögu reiðhjóla á Íslandi verða til sýnis í Tjarnasal Ráðhússins frá kl. 16:00 mánudaginn 16. september fram á sunnudag 22....

UMHVERFIS JÖRÐINA Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

Hann steig trylltan dans neðst a Skólavörðustíg í gær rólegum vegfarendum til upplyftingar. Þau eru tvö frá Japan á leið umhverfis jörðina á reiðhjólum...

TROÐFULLT HJÁ SIGMUNDI DAVÍÐ Í HAMRABORG

Flestir fengu sæti, þó ekki allir, í vöfflukaffi hjá Sigmundi Davíð í Hamraborg á sunnudaginn - troðfullt. Sigmundur Davíð hefur farið með himinskautum í skoðanakönnunum...

HEPPIN SYSTKINI

3. maí 1957 hreppti Margrét Hólm þennan glæsilega Fiat 1100 í Happdrætti DAS en myndin er tekin í Keflavíkurhöfn þegar hún tók við vinningnum....

LIFE IS PAIN…BRAUÐ OG CO Í AUSTURSTRÆTI

Brauð og Co hefur opnað í Austurstræti ferðamönnum til ánægju enda fá þeir þar ódýrasta hádegismat miðbæjarins: Snúð og kókómjólk á 1.100 krónur. Bragðgott...

TOMMI ÞAKKAR FYRIR NÝJU STÓLANA OG GRILLAR RÁÐHERRA

Tommi á Búllunni, þingmaður Flokks fólksins, er ánægður með nýju stólana á Alþingi og þakkaði fyrir sig í umræðum um fjárlagafrumvarpið: "Þeir eru þægilegri...

LÍTIL VERÐBÓLGA Á JÓMFRÚNNI

Tíu manna vinahópur fór a Jómfrúna í Lækjargötu til að gera sér dagamun. Jómfrúin er enginn skyndibitastaður og verðlagning hefur verið í samræmi við...

Sagt er...

Haustblómin eru komin á Skólavörðustíg og vekja athygli ferðamanna sem spyrja: "Eru þetta íslenskar plöntur?"

Lag dagsins

Einar Már Guðmundsson er sjötugur í dag. Einn mesti rithöfundur sinnar tíðar og jafnvirtur í Danmörku og á heimslóð enda bjó hann um árabil...