„Nú er ég kominn á nýjan bíl,“ segir Brynjar Níelsson og er alls ekki ánægður með hann:
–
„Stöðugar athugasemdir um aksturslag mitt með háværu pípi, sem er ekki gott fyrir taugabilaðan mann. Á það einnig til að spyrja mig hvort geti verið að ég sé undir áhrifum. Svo hemlar hann þegar honum sýnist og beygir óumbeðinn.
Ég rauk í fússi upp í bílaumboðið því mér fannst þessi afskiptasemi komin út fyrir öll eðlileg mörk og beinlínis árás á friðhelgi einkalífsins. Mér var tjáð að þetta væri hvorki njósnahugbúnaður né óðeðlileg afskiptasemi heldur umhygggja í boði ESB. Gat nú verið! Næsti bíll sem ég kaupi mun vera framleiddur fyrir aldamótin.“



