Te & Kaffi fagnar 42 árum í dag. fjölskyldufyrirtæki stofnað árið 1984 af hjónunum Sigmundi Dýrfjörð og Berglindi Guðbrandsdóttur og fyrsta íslenska fyrirtækið sem sérhæfir sig í sölu og framleiðslu á fersku sælkerakaffi og tei í lausavigt.
–
Ævintýrið hófst með lítilli tebúð á Barónsstíg þar sem ástríða fyrir hágæða tei og kaffi smitaði út frá sér og viðskiptavinunum fjölgaði ört. Nú, 42 árum síðar, er Te & Kaffi enn rekið af fjölskyldunni og með sömu ástríðu sem fyrst.



