
„Verkefnið okkar er að setja niður fljótandi gufubaðsklefa á Ólafsfjarðarvatn í landi Brekkulands. Við teljum að þetta verði frábær viðbót við fjölbreytt úrval heilsu- og útivistar- tengdrar afþreyingar í Fjallabyggð fyrir bæði íbúa og gesti,“ segja Pálmi og Svava sem búa í Brekkulandi í Ólafsfirði og safna nú fyrir verkefninu á Karolina Fund – 14 dagar til stefnu.
Gufubaðsklefinn verður að hámarki fyrir 12 persónur, staðsettur á flotbryggju, smíðaður úr timbri með stórum glugga svo hægt sé að njóta útsýnis yfir vatnið og fjöllin í kring. Þetta verður svokölluð „þurrgufa“ þar sem gufan er framkölluð með því að skvetta vatni yfir steina sem hitaðir eru með rafmagnshitara. Flotbryggjan verður um það bil 1-2 metra frá landi og landgangur smíðaður úr timbri. Áhersla er lögð á að raska náttúrunni sem allra minnst svo að gestir upplifi og njóti ósnortinnar náttúru í bland við hitann í gufunni og kuldann í vatninu. Gufubaðsklefinn verður opinn og aðgengilegur öllum sem vilja.




